|
|||||||||||
|
Ferðast til Danmerkur Flutt til Danmerkur Danmörk í tölum Hagnýtir tenglar Spjallþræðir |
|||||||||||
| 5. apríl 2005 Sumarhús í Danmörku! Nú er hægt að bóka sumarhús á www.danmork.is! Í boði eru yfir 13.000 sumarhús um alla Danmörku. Veldu þér sumarhús hér! 14. ágúst 2007 Ný og endurbætt spjallborð eru kominn á vefinn. Nú geturðu stofnað notanda og haft þína eigin skráningu inn á vefinn, fengið tilkynningar um svör og innlegg í tölvupósti o.fl. Búið er að skipta spjallinu upp í nokkur mismunandi borð eftir málaflokkum og hafa Íslendingafélögin fengið sín eigin borð líka. Kíktu á spjallið og spurðu þá sem hafa reynsluna um hvað sem þér dettur í hug um Danmörku. 1. apríl 2005 Nýtt kollegi á Austurbrú! Verið er að opna nýtt kollegi með 102 ca. 20 fermetra einstaklingsíbúðum við Østerbrogade í Kaupmannahöfn. Leiga er á bilinu 3.200 DKK til 4.500 DKK með öllu, þar með talið aðgangi að líkamsræktarstöð. Nánari upplýsingar fást hér! 24. janúar 2005 Gisting hjá Íslendingum í Danmörku Nú er búið að lista nokkra af þeim íslendingum sem bjóða upp á heimagistingu í Danmörku, bæði í Kaupmannahöfn og á Jótlandi. Þið finnið tenglana hér! 30. ágúst 2004 Ný slóð - DANMORK.IS Síðan hefur fengið nýja og betri slóð: danmork.is. Ætti þessi nýja slóð að auðvelda öllum að finna vefinn og muna slóðina og er það von mín að þessi breyting mælist vel fyrir og valdi ekki ruglingi. 1. ágúst 2004 Nýir tenglar um leigumarkaðinn Komnir eru fleiri tenglar yfir á leigumiðlanir og vefi sem hafa upplýsingar um leigumarkaðinn, leigulögin o.fl. Smellið á Flutt til Danmerkur og veljið svo Húsnæði. 25. júlí 2004 Sumarhús í Danmörku! Nú eru komnir tenglar yfir á tvo vefi sem bjóða sumarhús til leigu um alla Danmörku, Cofman og Sol & Strand. Alls eru þessir vefir með um 14.000 sumarhús í Danmörku þannig að hver ætti að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Meðal annars er hægt að leigja sumarhús í hinum eftirsótta sumarhúsagarði Lalandia í gegnum Sol & Strand. 24. apríl 2004 NÝTT! Spjallþræðir! Nú eru komnir spjallþræðir á vefinn þar sem gestir geta lagt inn fyrirspurnir, ábendingar og auglýsingar um allt er viðkemur Danmörku og Íslendingum í Danmörku og svarað þeim sem komnar eru. 18. apríl 2004 NÝTT! Vegalengdir í Danmörku! Nú er búið að bæta inn töflu með vegalengdum í bæði kílómetrum og mílum milli allra helstu bæja í Danmörku. Mjög gott getur verið að skoða slíka töflu þegar verið er að skipuleggja akstur í Danmörku. Töfluna er að finna undir Danmörku í tölum. Danmork.is Danmork.is er nýr upplýsingavefur fyrir Íslendinga um Danmörku. Hér er að finna gnægð hagnýtra upplýsinga fyrir Íslendinga á leið til Danmerkur, hvort sem þú ert að fara í stutta helgarferð eða alfarin frá Íslandi með alla fjölskylduna og búslóðina. Leitast er við að vera að endursegja sem minnst og vísa frekar yfir á vefi þar sem er að finna nýjustu og réttustu upplýsingarnar um það sem skiptir máli. Það sparar þér mikla vinnu að byrja á réttum stað. Danmork.is vísar þér beint á það efni sem skiptir máli og bendir á hvar eigi að byrja þegar skipuleggja á fríið eða flutninginn til Danmerkur. Einnig er bent á ýmsa ferðamöguleika áfram frá Danmörku sem áhugavert getur verið að skoða nánar. Njótið vel! © 2003-2008 Scope Communications Allur réttur áskilinn Um síðuna |
|||||||||||