|
||||||||||||
|
Ferðast til Danmerkur Flutt til Danmerkur Danmörk í tölum Hagnýtir tenglar Spjallþræðir Flutningurinn Skráning Húsnæði Atvinna Stofnun fyrirtækis Nám Samgöngur Neytendur Börn |
||||||||||||
| Börn Munið skattalegt heimilisfesti! Danir eru fæddir pedagógar (Pedagóg er danska orðið yfir hvers kyns fóstrur og faglærðar ummönnunarmanneskjur). Leikskólar og skóladagheimili eða sel geta virkað undir engri stjórn við fyrstu sýn fyrir Íslendinga sem koma úr frekar stífum dagvistardagskrám heima. Frelsið er almennt mun meira hér og möguleikarnir jafnframt líka. Það er strax nokkuð ljóst að það er meiri peningum veitt í dagvistunarmál í Danmörku en á Íslandi og eru sérstaklega skólaselin alveg frábær. Mikið er um ferðalög, bæði dagsferðir og lengri ferðir og almennt mjög margt sem krakkarnir geta fengið að prófa og gera. Að sjálfsögðu eru til undantekningar frá þessu eins og öðru. Barnsfæðingar Almennt séð er ekkert verra að eignast börn í Danmörku en á Íslandi. Fyrir námsmenn er gott að muna að þeir eiga ekki rétt á fæðingarorlofi samkvæmt dönskum lögum en ef þeir hafa haldið skattalegu heimilisfesti á Íslandi geta þeir fengið íslenskt fæðingarorlof. Til að fá frekari upplýsingar um barneignir í Danmörku, úttekt á öllum fæðingardeildum (populare features - Danmarks fødesteder) og fleiri hagnýtar upplýsingar er þetta varðar er rétt að benda á B-A-B-Y.dk Nöfn íslenskra barna í Danmörku Margir hafa lent í miklum hrakförum með að fá íslensk nöfn á börnin sín í Danmörku. Það er hægt, en afskaplega flókið og orkukrefjandi. Hér er að finna lýsingu á skráningarferlinu fyrir íslenskt nafn í Danmörku. Smelltu hér! Skemmtilegir tenglar fyrir börn og unglinga í Damörku © 2003-2007 Scope Communications Allur réttur áskilinn Um síðuna |
||||||||||||