Upplýsingasíða um Danmörku

Ferðast til Danmerkur
Flutt til DanmerkurDanmörk í tölumHagnýtir tenglarSpjallþræðir
Sumarhús SamgöngurGistingSöfnSkemmtigarðarFerðast áframÝmislegt

Ferðast áfram til fjarlægari landa

Miðað við Ísland, liggur Danmörk mjög miðsvæðis. Mjög ódýrt og auðvelt er að komast til landa eins og Noregs og Svíþjóðar, Þýskalands, Hollands og Póllands. Hægt er að sigla með ferjum, keyra með rútum eða leigja sér bíl. Einnig er slatti af lágfargjaldaflugfélögum sem fljúga víða um heim og svo er hægt að kaupa ódýrar pakkaferðir með dönskum ferðaskrifstofum á ýmsa áhugaverða áfangastaði eins og t.d. Túnis, Tyrklands o.fl., sem oft er ekki boðið upp á frá Íslandi. Hér að neðan er að finna tengla yfir á nokkrar af helstu ferðaskrifstofum Danmerkur. Til að fá upplýsingar um flug, lestir, rútur, bílaleigubíla og ferjur er bent á síðuna um samgöngur og upplýsingar um hótel, hvar sem er í heiminum, er að finna undir gistingu. Góða ferð!

Danskar ferðaskrifstofur:
Kilroy Travels, ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í þjónustu við þá sem vilja ferðast á eigin vegum, ungu fólki upp að 26 ára aldri og námsmönnum upp að 33. Oft mjög góð verð og mjög góðir skilmálar á flugmiðum og slíku.

Sólarlandaferðir, menningarferðir, borgarferðir o.fl.
Apollo, klassísk sólarlandaferðaskrifstofa
MyTravel, tilboðssíða með á-síðustu-stundu tilboðum, börn borga 1 krónu, uppboðum o.s.frv.
Travelstart.dk, vefsíða með fjölda góðra ferðatilboða
Rejsefeber, mjög stór ferðavefur með fullt af tilboðum
Tyrkiet eksperten, sérhæfir sig í Tyrklandsferðum en hefur oft ýmislegt annað líka
DTF-travel, býður upp á sumarhús, hótel og fleira á góðu verði fyrir þá sem vilja skipuleggja ferðalagið sitt sjálfir.

Aðrir ferðavefir:
Expedia.co.uk, að vísu bresk ferðaskrifstofa en með glás af góðum tilboðum um allan heim
Lastminute.com býður upp á frábær verð á hótelum fyrst og fremst en einnig bílaleigum, flugum o.fl.
Priceline.co.uk er vefur þar sem þú býður í hótelin. Þar er einnig að finna bílaleigur

Rútuferðir
Bogdans Rejser
Dania Rejser
Fjernbusser
Prima Rejser

© 2003-2007 Scope Communications • Allur réttur áskilinn • Um síðuna
Ábendingar og leiðréttingar • Bæta síðunni í Favorites/Bookmarks (ctrl+D)