Upplýsingasíða um Danmörku

Ferðast til Danmerkur
Flutt til DanmerkurDanmörk í tölumHagnýtir tenglarSpjallþræðir
Sumarhús SamgöngurGistingSöfnSkemmtigarðarFerðast áframÝmislegt

Samgöngur

Almenningssamgöngur í Danmörku eru dásamlegar. Strætó gengur á um 5-7 mínútna fresti á helstu umferðaræðum og lestarkerfið skilar manni hratt og örugglega áfram lengri vegalengdir. Rejseplanen er vefur þar sem hægt er að slá inn brottfararstað og áfangastað og fá upp nokkra mögulega ferðakosti. Þar eru upplýsingar um allar strætóferðir, lestarferðir, tímaáætlanir og oft verð líka. Einnig er hægt að fá góðar upplýsingar inn á vef HT (Hovedstadens Transport) og DSB (Danske Stats Bane).

Mjög auðvelt er að hjóla um alla Danmörku eftir sérstökum hjólreiðastígum og kominn er stígur frá Kaupmannahöfn alla leiðina til Berlínar, um 700 km. Víða eru sér umferðarljós fyrir reiðhjól og sérakreinar á götum. Hjól eiga alltaf réttinn á bíla og því þurfa bílstjórar að passa sig mjög vel á hjólreiðamönnum, sérstaklega í hægri beygjum. Hægt er að taka ókeypis hjól á stöndum um alla miðborg Kaupmannahafnar og skila í hvaða stand sem er. Skilagjald er 20 kr. og virkar það eins og með innkaupakerrur.



Ýmsir hagnýtir tenglar:

Flugfélög:
SAS, samnorrænt flugfélag
MAERSK, danskt flugfélag
STERLING, fyrsta lágfargjaldaflugfélag Norðurlanda
Mr. Jet, þar sem er að finna flugmiða til og frá Danmörku á lágmarksverði
Icelandair, þarf ekki að kynna
Iceland-express, lifi samkeppnin!
Ryan-air, dásamlegt írskt lágfargjaldaflugfélag sem flýgur frá Sturup í Svíþjóð, Árósum og Esbjerg
Easy-Jet, flýgur frá Kaupmannahöfn.

Lestir og rútur:
Rejseplanen- vefur þar sem hægt er að slá inn upphafsstað og áfangastað og síðan færðu allar upplýsingar um hvernig og hvenær þú kemst á milli. Frábær vefur!
HUR - Hovedstadens transport - trafik info (allar strætóupplýsingar í Stór-Kaupmannahöfn)
DSB - danska lestarkerfið
Europe on Rail, þar sem hægt er að panta inter-rail miða og lestarmiða fyrir alla Evrópu
Eurolines, eitt stærsta rútufyrirtæki í Evrópu

Bílaleigubílar:
Auto Europe - Bílaleiga Auto Europe ábyrgist ávallt lægstu verðin á bílaleigubílum í yfir 30 löndum, ótakmarkaðir kílómetrar og engin sjálfsábyrgð
Easybiler, bílaleiga sem býður ódýra bíla en með fáum kílómetrum inniföldum. Borgar sig fyrir leigur í einn eða tvo daga.

Brýrnar:
Eyrarsundsbrúin
Stórabeltisbrúin

Ferjurnar:
Scandlines, ferjur innan Danmerkur sem og yfir til Svíþjóðar, Þýskalands og Póllands
DFDS Seaways, ferjur frá Danmörku til Svíþjóðar, Noregs, Englands og Póllands
Smyril-line, (Norræna) ferja frá Danmörku (eða Færeyjum) til Noregs, Hjaltlandseyja, Færeyja og Íslands
Mols-linien, ferjur á milli Jótlands og Sjálands
HH-Ferries, ferjur á milli Helsingør í Danmörku og Helsingborg í Svíþjóð
Polferries, ferjur á milli Kaupmannahafnar og Swinouscie

© 2003-2008 Scope Communications • Allur réttur áskilinn • Um síðuna
Ábendingar og leiðréttingar • Bæta síðunni í Favorites/Bookmarks (ctrl+D)