|
|||||||||||
|
Ferðast til Danmerkur Flutt til Danmerkur Danmörk í tölum Hagnýtir tenglar Spjallþræðir Sumarhús Samgöngur Gisting Söfn Skemmtigarðar Ferðast áfram Ýmislegt |
|||||||||||
| Útihátíðir, tónleikar og fleira spennandi
Tónlistarhátíðir eru vinsælar hjá Dönum á sumrin og er þeirra frægust Hróarskelduhátíðin sem haldin er um mánaðarmótin júní / júlí. En það er líka fjöldi annarra stórra hátíða sem gaman getur verið að fara á. Auk þess sækir fjöldinn allur af heimsþekktum hljómsveitum og tónlistarfólki Danmörku heim og heldur tónleika á hinum ýmsu stöðum. Til að fá upplýsingar um alla tónleika sem haldnir eru, leiksýningar og fleiri menningarviðburði eru fyrst og fremst þrír miðavefir sem sjá um alla miðasölu. Einnig er að finna mikið af upplýsingum inn á aok.dk og woco.dk. © 2003-2008 Scope Communications Allur réttur áskilinn Um síðuna |
|||||||||||