Upplýsingasíða um Danmörku

Ferðast til DanmerkurFlutt til DanmerkurDanmörk í tölumHagnýtir tenglarSpjallþræðir
FlutningurinnSkráningHúsnæðiAtvinnaStofnun fyrirtækisNámSamgöngurNeytendurBörn
Flutningurinn

Það sparar mikið ómak ef búið er að ganga frá íbúð áður en flutt er þannig að hægt sé að flytja beint inn. Það er mun auðveldara að vera húsnæðislaus á Íslandi en í Danmörku einhvern tíma þar sem stutt er til vina og ættingja, þannig að það borgar sig að ganga frá íbúðinni heima á Íslandi nokkru áður en lagt er af stað og senda búslóðina af stað svo hún komi á sama tíma og þú til Danmerkur. Þá er strax hægt að flytja inn og stofna nýtt heimili. Það er bæði dýrt og leiðigjarnt að bíða vikum eða mánuðum saman á gistiheimilum, ekki síst ef börn eru með í för.

Ein af spurningunum sem þú þarft að spyrja þig er hvort það borgi sig að flytja búslóðina með eða kaupa bráðarbirgðarhúsgögn meðan dvalið er í Danmörku? Það fer náttúrulega eftir lengt dvalar og stærð fjölskyldu. Ef þú velur að kaupa notuð húsgögn og flytja ekkert með þér þá eru tveir staðir sem ég vil benda á. Annars vegar er það "danska Kolaportið". Það kallast hér Det Blå Pakhus og er á Holmbladsgade úti á Amager. Hægt er að taka leið 5 frá Nørreport Station langa leiðina þangað. Hins vegar er það Ravnborgsgade, þvergata á Nørrebrogade þar sem eru fleiri tugir antikverslanna. Í Trige í Árósum er einnig skransali mikill og íslendingavinur sem gengur undir nafninu Skrani og á hann margt góðra muna. Auk þess er alltaf hægt að gera góð kaup í smáauglýsingadagblaðinu Den Blå Avis!

Ef þú velur að taka gám og flytja allt draslið með þér þá tekur það gáminn um viku til tíu daga að komast á áfangastað. Best er að kanna það og panta tímanlega þannig að hægt sé að stíla inn á að gámurinn sé kominn þegar þið komið á áfangastað. Hægt er að fá gámana senda alveg heim að dyrum. Þú getur líka fengið að halda gáminum í örfáa daga til að tæma hann. Það er hins vegar ekkert sérstaklega vinsælt hjá nágrönnunum og í mörgum götum ekki hægt vegna þrengsla. Stílaðu því inn á að tæma hann eins fljótt og mögulegt er.

Námsmenn athugið! Hægt er að sækja um flutningsstyrk Samskipa sem nemur um 12% af kostnaði við búslóðaflutning. Nánari upplýsingar er að finna hér á vef SÍNE

Skipafélög:
Samskip
Eimskip

Atlantsskip


Flutningafyrirtæki og sendibílastöðvar:
Bibo
4X34
Bøgeskov

© 2003-2007 Scope Communications • Allur réttur áskilinn • Um síðuna
Ábendingar og leiðréttingar • Bæta síðunni í Favorites/Bookmarks (ctrl+D)