|
|||||||||||
|
Ferðast til Danmerkur Flutt til Danmerkur Danmörk í tölum Hagnýtir tenglar Spjallþræðir Flutningurinn Skráning Húsnæði Atvinna Stofnun fyrirtækis Nám Samgöngur Neytendur Börn |
|||||||||||
| Skattalegt heimilisfesti Undir venjulegum kringumstæðum hjá námsmönnum sem eru einstæðingar er kannski erfitt að sjá af hverju maður ætti að halda í það ómak sem fylgir skattalegu heimilisfesti og vera að telja fram í tveimur löndum. Ef það hins vegar bætist barn í hópinn verða kostirnir ótvíræðir. Það sem skattalegt heimilisfesti þýðir í stuttu máli er að námsmenn erlendis halda ýmsu réttindum til skattaafsláttar og bóta á Íslandi þó þeir séu búsettir erlendis, sé það vegna náms. Það sama gildir um maka og börn ef þeir eru eingöngu búsettir erlendis vegna námsmanns. Ég get tekið dæmi af sjálfum mér sem flutti með tvö börn frá Íslandi til Danmerkur vegna náms. Ég hafði haft sæmilegar tekjur á fyrri helmingi ársins sem ég flutti til Danmerkur en eftir að ég flutti út um sumarið var ég tekjulaus. Í ágúst árið eftir fékk ég skattauppgjör ársins og var þá tjáð að ég skuldaði skattinum um 60.000 krónur. Ég kærði á grundvelli þess að ég ætti rétt á skattalegu heimilisfesti og fékk leiðréttingu, endurgreiddan skatt vegna vannýtts persónuafsláttar á seinni helmingi ársins, alls um 300.000 krónur. Munurinn var því um 360.000 krónur eftir því hvort ég sótti um skattalegt heimilisfesti eða ekki. En þetta er ekki allt og sumt. Hér í Danmörku eiga námsmenn ekki rétt á neinu fæðingarorlofi. Ef hins vegar námsmaður hefur alltaf talið fram heima og haldið skattalegu heimilisfesti á hann rétt á fæðingarorlofi frá Íslandi (eða fæðingarstyrk, man ekki hvort það kallast). Hér er um ca 9x80.000 kr íslenskar að ræða. Barnabætur eru líka hærri á Íslandi heldur en í Danmörku en ef maður heldur skattalegu heimilisfesti á Íslandi þá fær maður mismuninn greiddan í ágúst árið eftir. Gleðilegt það. Vandamálið er hins vegar það að ef námsmaður hefur eitt árið ekki talið fram heima og haldið skattalegu heimilisfesti, þá er ekki hægt að byrja á því aftur. Það verður að telja fram á hverju ári frá því að maður kemur út til þess að halda þessum réttindum. Það er því mjög mikilvægt fyrir námsmenn sem eru að telja fram í fyrsta skipti eftir að flutt er út, að sækja um skattalegt heimilisfesti. Ef þið eruð búin að skila án þess að sækja um skattalegt heimilisfesti getið þið haft samband við endurskoðenda eða ríkisskattstjóra til að fá leiðréttingu. Maður verður ekki skattaður tvöfalt við það heldur er það til þess að halda ýmsum réttindum á Íslandi. Sjá upplýsingablað skattstjóra um skattalegt heimilisfesti! © 2003-2007 Scope Communications Allur réttur áskilinn Um síðuna |
|||||||||||