|
|||||||||||||
|
Ferðast til Danmerkur Flutt til Danmerkur Danmörk í tölum Hagnýtir tenglar Spjallþræðir Flutningurinn Skráning Húsnæði Atvinna Stofnun fyrirtækis Nám Samgöngur Neytendur Börn |
|||||||||||||
| Húsnæði Það fyrsta sem ber að taka fram þegar húsnæði ber á góma er að standardinn á húsnæði í Danmörku er allt annar heldur en íslendingar venjast heiman frá. Ef um litlar íbúðir er að ræða í miðborg Kaupmannahafnar er enn hægt að finna talsvert af íbúðum þar sem klósettið er um hálfur fermeter á stærð (grínlaust) eða jafnvel fram á gangi og deilt með nágrannanum. Víða eru engin baðherbergi heldur hefur verið komið upp sturtuklefa inni í svefnherbergi eða stofu, eða hægt er að tengja slöngu við eldhúskranann. Einangrun er allt önnur og hús almennt illa einangruð og dýr í kyndingu. Veggir eru úr oftast úr múrsteinum og togþol þeirra lítið. Það þarf því að styrkja festingar mjög vel og ég þori ekki að hengja neitt upp fyrir ofan rúm. Ég hef lent í því að hillur, fatahengi, gluggatjöld og veggljós hafi fyrirvaralaust hrunið úr veggnum (og það er ekki bara af því að ég sé svo óhandlaginn). Það getur jafnvel verið ráð að kaupa pínu sement og steypa skrúfurnar í vegginn til að vera viss um að þær haldi. En þetta er náttúrulega misjafnt eftir húsum (mitt er byggt í seinni heimstyrjöldinni). Einnig er rétt að muna að vatn (bæði heitt og kalt), rafmagn og hiti kostar margfalt meira en á Íslandi. Víða er kostnaðurinn fyrir þetta sameiginlegur sem gerir það að verkum að Íslendingar sem eru hálftíma í sturtu og láta kalda vatnið renna á fullum krafti meðan þeir bursta tennur eru mjög óvinsælir! Eigið húsnæði Borgar sig að kaupa eða leigja, eða finnast önnur búsetuform sem vert er að kanna nánar? Þumalputtareglan er sú að ef þú ætlar að vera lengur en 2-3 ár þá borgar sig að kaupa. Húsnæði í Kaupmannahöfn er aðeins dýrara en í Reykjavík en víðast hvar úti á landi er það ódýrara. Almennt er útborgun aðeins um 5%. 80% eru á hagstæðum húsnæðislánum en um 15% eru bankalán. Ef þú getur sloppið við bankalánið og borgað út 20% ertu í mjög góðum málum og ekki spurning að það borgar sig að kaupa. Húsnæðisverð hefur verið á hraðri uppleið undanfarin ár og þrátt fyrir að efnahagsástandið sé ekki sérlega jákvætt um þessar mundir í Danmörku eru litlar líkur á að verð í Kaupmannahöfn fari niður. Meiri hætta er á því á landsbyggðinni. Ekkert er þó öruggt í þessum efnum. Enn sem komið er eru verð á húsnæði í Kaupmannahöfn talsvert lægri en í höfuðborgum nágrannalandanna. Mjög mikilvægt er að kanna fasteignaskatta þegar kostnaðurinn við kaup er reiknaður út því þeir eru margfalt hærri í Danmörku en á Íslandi. Þegar fasteignaauglýsingar eru skoðaðar má sjá tvö verð, brutto og netto. Brúttó eru afborganirnar á mánuði á meðan nettó eru afborganirnar eftir að búið er að reikna inn vaxtabætur. Vaxtabætur í Danmörku eru hins vegar í formi skattaafsláttar þannig að til þess að njóta þeirra þarftu að vera yfir ákveðnum tekjumörkum. Þetta þýðir það t.d. að námsfólk sem kaupir fær ekki vaxtabætur. Leigumarkaðurinn Leigumarkaðurinn í Kaupmannahöfn er mjög erfiður. Framboð á íbúðum er mjög lítið og verð eru mjög há. Hins vegar er leigutaki mjög vel verndaður af lögum og reglum og lítil hætta á óþægilegum uppákomum. Einnig er hægt að fá húsaleigubætur. Andelsboliger Andelsboliger eru sameignaríbúðir. Þá er stofnað hlutafélag um heila byggingu eða götu og þú getur keypt þér hlut í henni. Sá hlutur er oft mjög dýr en leiguverðið eftir það er hins vegar lágt. Þetta getur verið góður kostur og er mjög vinsælt í Danmörku. Einnig er stundum hægt að fá slíkar íbúðir á framleigu og eru það oft bestu leigudílarnir. Boligforeninger Hér les maður fréttir um aumingjans fólkið sem ekki gat beðið eftir svona íbúðum og neyddist því til að kaupa sér. Þetta virkar eins og Búseti á Íslandi. Fólk skráir sig á biðlista eftir íbúð þar sem það getur síðan keypt búseturéttinn. Leigan er mjög lág eftir það. Hins vegar er biðin eftir þessum íbúðum mjög löng, alla veganna í Kaupmannahöfn, oft tugir ára og fólk er farið að borga margfalt meira til að komast inn í svona íbúðir. Það getur þó verið hægt að komast mun fyrr að úti á landi. TENGLASAFN: Fasteignasölur: Robinhus.dk, hér er hægt að spara mikla peninga er þú ert að hugsa um að selja, föst sölulaun, ekki prósentur. DanBolig EDC-mæglerne Home NyBolig Scheel & Orloff Leiguíbúðir: Lejeloven, lagabálkurinn um leigu af íbúðum Lejebolignet, ódýrar leiguíbúðir um allt land Lejemarked.dk, öflugur leigumarkaður á netinu Bolig-udlejning.dk, stærsta leigumiðlun Danmerkur Ledigelejligheder.dk, vefur þar sem þú getur auglýst eftir íbúð og skoðað íbúðir í boði í Danmörku, Svíþjóð og Noregi Bolig1, leigumiðlun Boligportal, húsnæðisvefur Den blå avis, smáauglýsingablað Kollegie: Kagså - fjölskylduíbúðir 'Øresundskollegiet, stúdentaíbúðir á Amager Andelsboliger og boligforeninger Andelsboligloven, lögin um andelsboliger Andelsbolig-debat.dk, umræðuvefur um andelsboliger. AAB Boligudlejningen, vefur með tenglum yfir á andelsboliger og boligforeninger Lejerbo © 2003-2007 Scope Communications Allur réttur áskilinn Um síðuna |
|||||||||||||