Upplýsingasíða um Danmörku

Ferðast til Danmerkur Flutt til DanmerkurDanmörk í tölumHagnýtir tenglarSpjallþræðir
FlutningurinnSkráningHúsnæðiAtvinnaStofnun fyrirtækisNámSamgöngurNeytendurBörn
Nám

Munið skattalegt heimilisfesti!

Námsframboð í Danmörku er gríðarlega mikið og á afskaplega mismunandi stigum. Danir eru almennt sannfærðir um að dönsk menntun sé sú allra besta í heimi. Ég er ekki alveg tilbúinn til að fullyrða það en get fyllilega samþykkt að danskt nám sé almennt fyrsta flokks. Það getur verið erfitt að fá metið inn í danska skóla ýmis námskeið og nám sem tekin hafa verið í öðrum löndum og yfirleitt er það þannig að til að komast í mastersnám í einhverri grein þarftu yfirleitt að hafa lokið BA eða BS námi í akkúrat sömu grein og mastersnámið er í. Annars áttu á hættu að þurfa að taka upp grunnnámið að hluta eða í heild.

Það sem hins vegar gerir Danmörku einn af bestu stöðunum til þess að fara í nám er sá aðbúnaður sem námsmönnum er boðinn. Allt almennt nám er ókeypis en samt af miklum gæðum. Námsmenn með börn fá ókeypis leikskólapláss og njóta oft forgangs á biðlistum. Þannig að ef hugurinn stendur til náms hjá barnafólki þá er óhikað hægt að mæla með Danmörku.


S.U.

Íslendingar eiga ekki rétt á SU sem er námsstyrkur frá danska ríkinu. Undanþágu frá þessu er þó hægt að fá ef viðkomandi hefur unnið fulla vinnu í tvö ár í Danmörku áður en nám hefst. Að vera heima með börnum telst sem full vinna í þessu tilfelli en nám telst ekki með. Ef foreldrar hafa búið og starfað í Danmörku getur það einnig haft einhver áhrif. Annars þurfa flestir að framfleyta sér með aðstoð frá LÍN.

Að loknu námi:
Í augnablikinu er atvinnuleysi meðal nýútskrifaðra mjög mikið. Ef fólk hefur einhver tök á því þá getur það verið mjög góð og gagnleg reynsla að vinna í smá tíma áður en komið er heim. En um leið gerir það flutninginn heim erfiðari. Mjög mikilvægt er að muna að til að fá atvinnuleysisbætur að loknu námi þá verður námsmaður að skrá sig hjá A-kassa innan fjórtán daga fyrir eða eftir útskrift. Ef þú gleymir að skrá þig akkúrat á þessu tímabili áttu ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Og það borgar sig að fylgja þessu eftir því Daninn er ekki jafn ligeglad og hann heldur sjálfur og hlutunum er ekki reddað fyrir mann eins og oft heima á Íslandi. Í flestum tilfellum ætti réttur A-kassi fyrir nýútskrifaða að vera AAK eða ASE.


Háskólar í Danmörku

Námsmannafélög í Danmörku:
Félag íslenskra stúdenta í Kaupmannahöfn
Félag Íslendinga við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn - CBS
Félag íslenskra verkfræðinema í DTU
Félag Íslendinga við KVL í Kaupmannahöfn
Félag íslenskra læknanema í Danmörku

Hagnýtir tenglar:
Alþjóðaskrifstofa Háskólastigsins
LÍN
SÍNE
FÍNK (Félag Íslenskra Námsmanna í Kaupmannahöfn)
SU-kontoret
Íslendingafélagið í Kaupmannahöfn

A-kassar:
AAK - Akademikernes Arbejdsløshedskasse
ASE

© 2003-2007 Scope Communications • Allur réttur áskilinn • Um síðuna
Ábendingar og leiðréttingar • Bæta síðunni í Favorites/Bookmarks (ctrl+D)