Upplýsingasíða um Danmörku

Ferðast til DanmerkurFlutt til DanmerkurDanmörk í tölumHagnýtir tenglarSpjallþræðir
FlutningurinnSkráningHúsnæðiAtvinnaStofnun fyrirtækisNám SamgöngurNeytendurBörn
Neytendur

Verðlag er almennt lægra í Danmörku en á Íslandi, ekki hvað síst á kjöti og áfengi. Mjólkurafurðir og brauð er á svipuðu verði og bílar eru mun dýrari. Samt sem áður er verðlag í nágrannalöndunum, Svíþjóð og Þýskalandi, almennt ennþá lægra. Eitt ber þó að varast, og það er að reglur um verð í auglýsingum eru ekki jafn ströng í Danmörku og á Íslandi. Það er því mjög algengt að þau verð sem séu auglýst séu í engu samhengi við raunveruleikann vegna þess að ofan á verðið leggjast ýmis konar stofngjöld, þjónustugjöld og þóknanir sem numið geta hundruðum og jafnvel þúsundum danskra króna.

Neytendasamtökin eru mjög öflug í Danmörku og í sjónvarpinu eru neytendaþættir þar sem tekið er á ýmsum málum er varða neytendur. Það getur verið mjög fróðlegt og gagnlegt að fylgjast með þessum þáttum.

Það hefur verið mörgum íslenskum börnum erfitt að ekki skuli vera hægt að fá Cheerios, Cocoa Puffs, kók í dós eða Prins Póló í Danmörku. En batnandi löndum er best að lifa og nú er hægt að fá þetta allt, að Prins póló undanskildu, í Danmörku. Cheerios er selt sem Cheerios undir merkjum Nestlé og Cocoa Puffs heitir Nesquick. Prins pólóið fæst í Póllandi og er hægt að taka ferjuna beint þangað.

Símtöl eru talsvert dýrari í Danmörku en á Íslandi og því borgar sig að vera útsjónasamur í þeim efnum. Ég mæli með Skype þar sem hægt er að hringja frítt tölvu úr tölvu og á "lókal" taxta úr tölvu í síma og úr síma í tölvu. Það er þúsundir króna að spara þar.

Hér að neðan eru tenglar yfir á nokkrar mismunandi netverslanir þar sem þið getið skoðað verðin:

Matvöruverslanir:
Netto
Iso
Bilka
Føtex
Kvickly
Fakta

Sérverslanir:
Amitech - dönsk tölvuverslun
CDON.com - verslun með geisladiska og DVD myndir
SmartGuy.dk - verslun með allt mögulegt fyrir karlmenn. Þeir selja meira að segja tax-free til Íslands!

© 2003-2005 Scope Communications • Allur réttur áskilinn • Um síðuna
Ábendingar og leiðréttingar • Bæta síðunni í Favorites/Bookmarks (ctrl+D)