Upplýsingasíða um Danmörku

Ferðast til DanmerkurFlutt til DanmerkurDanmörk í tölumHagnýtir tenglarSpjallþræðir
FlutningurinnSkráningHúsnæðiAtvinnaStofnun fyrirtækisNám SamgöngurNeytendurBörn
Samgöngur

Almenningssamgöngur í Danmörku eru dásamlegar. Strætó gengur á um 5-7 mínútna fresti á helstu umferðaræðum og lestarkerfið skilar manni hratt og örugglega áfram lengri vegalengdir. Rejseplanen er vefur þar sem hægt er að slá inn brottfararstað og áfangastað og fá upp nokkra mögulega ferðakosti. Þar eru upplýsingar um allar strætóferðir, lestarferðir, tímaáætlanir og oft verð líka. Einnig er hægt að fá góðar upplýsingar inn á vef HT (Hovedstadens Transport) og DSB (Danske Stats Bane).

Ef þú finnur húsnæði nálægt lestarstöð er engin ástæða til að eiga bíl. Bílar eru líka mjög dýrir í innkaupum í Danmörku en álagning ríkisins er um 180%. Hins vegar eru bílalán mun ódýrari í Danmörku en á Íslandi. Hægt er að aka á bíl á íslenskum númerum í ár án þess að borga af honum (þ.e.a.s. tolla og innflutningsgjöld, þetta gildir ekki um afborganir af lánum ;o). Námsmenn geta ekið á bíl í allt að þrjú ár með því að borga aðeins hluta af gjöldunum á hverju ári. Að þremur árum liðnum ertu samt búinn að borga fullt innflutningsgjald. Hins vegar getur verið mjög erfitt að ætla sér að vera bíllaus ef maður byrjar á því að vera á bíl.

Sá kostur sem ég hef valið og get algjörlega mælt með er að búa nálægt lestarstöð og eiga engan bíl. Mjög auðvelt er að hjóla og um alla Danmörku liggja reiðhjólastígar. Oft á tíðum er reiðhjól langhraðskreiðasti fararskjótinn, sérstaklega í miðborg Kaupmannahafnar. Fjallahjól eru hins vegar algjörlega "out" í Danmörku. Hér gildir að vera á sem klassískustu reiðhjóli, eins og t.d. Kronan hjóli.

Ef hugurinn stendur til lengri ferðalaga er bara hægt að leigja bíl. Það getur reyndar verið mjög dýrt á almennum markaði en ég get mælt með The Shortcut To Auto Europe sem ég hef oft notað. Einnig er mjög ódýrt að ferðast til nágrannalandanna með rútum, lestum og flugi. (sjá ferðasíður)

Ýmsir hagnýtir tenglar:
Rejseplanen - vefur þar sem hægt er að slá inn upphafsstað og áfangastað og síðan færðu allar upplýsingar um hvernig og hvenær þú kemst á milli. Frábær vefur!
HUR - Hovedstadens transport (allar strætóupplýsingar í Stór-Kaupmannahöfn
DSB - danska lestarkerfið

The Shortcut To Auto Europe - Ábyrgist ávallt lægstu verðin á bílaleigubílum í yfir 30 löndum
Autocom - Láttu bílasalana bjóða í bílinn þinn
Bilbasen - yfir 40.000 bílar til sölu
Den blå avis - Smáauglýsingar

Síður fyrir bíleigendur:
FDM - Félag danskra bíleigenda
Falck - Neyðarþjónusta fyrir fjölskyldur, heimili þeirra og bíla

Fyrir upplýsingar um brýrnar, ferjurnar og fleira, sjá ferðasíðurnar

© 2003-2007 Scope Communications • Allur réttur áskilinn • Um síðuna
Ábendingar og leiðréttingar • Bæta síðunni í Favorites/Bookmarks (ctrl+D)