|
|||||||||||
|
Ferðast til Danmerkur Flutt til Danmerkur Danmörk í tölum Hagnýtir tenglar Spjallþræðir Flutningurinn Skráning Húsnæði Atvinna Stofnun fyrirtækis Nám Samgöngur Neytendur Börn |
|||||||||||
| Skráning Þegar komið er inn í landið þarf að skrá sig. Það gerist hjá Folkeregisteriet. Þegar þú skráir þig þarftu að sýna samnorrænt flutningsvottorð sem þú færð hjá Þjóðskrá á Hagstofu Íslands. Þú þarft bara að geta gefið upp danskt heimilisfang sem þú ætlar að flytja til. Hægt er að nálgast eyðublöð á vef Hagstofunnar eða bara mæta á staðinn og ganga frá þessu þar. Það borgar sig að fá um leið afrit af fæðingarvottorði, skírnarvottorði og hjúskaparvottorði því þú getur þurft að sýna þessi vottorð við ýmis tækifæri í Danmörku. Við skráningu í Danmörku færðu danska kennitölu og með póstinum nokkrum dögum síðar færðu Sygesikringskort. Það er nauðsynlegt að hafa þetta kort því þú þarft að sýna það hvar sem þú ferð og skráir þig eða börnin þín. Þú þarft það meira að segja til að leigja myndbandsspólu. Þegar þú skráir þig velurðu um leið lækni sem er í næsta nágrenni við heimili þitt. Öll læknisþjónusta er ókeypis í Danmörku, líka heimsóknir til heimilislækna, á neyðarvaktina eða slysavarðsstofuna. Atvinnuleyfi kemur sjálfkrafa fyrir íslendinga og ekki þarf að hafa neinar áhyggjur af því. Sjá nánar um slíkt undir atvinnu. Sjá börn til að fá upplýsingar um barnagæslu og barnaskóla. © 2003-2007 Scope Communications Allur réttur áskilinn Um síðuna |
|||||||||||