Upplýsingasíða um Danmörku

Ferðast til DanmerkurFlutt til DanmerkurDanmörk í tölumHagnýtir tenglarSpjallþræðir
FlutningurinnSkráningHúsnæðiAtvinnaStofnun fyrirtækisNámSamgöngurNeytendurBörn
Stofnun fyrirtækis í Danmörku

Þó að skattakerfið sé almennt mjög flókið, þá er fólki gert það mjög auðvelt að stofna fyrirtæki. Til eru fjórar gerðir af fyrirtækjum.
Enkeltmandsvirksomhed er einfaldasta formið. Það krefst einskis stofnkostnaðar en eigandi er ábyrgur fyrir öllum skuldum fyrirtækisins og allur hagnaður fyrirtækisins reiknast sem tekjur eigandans.
I/S sem er sameignarfélag. Það krefst einskis stofnkostnaðar frekar en hið fyrra og tekjur og skuldir reiknast beint á eigendur. Eini munurinn er að hér eru það fleiri en einn sem eiga fyrirtækið.
Anpartsselskab Aps krefst 125.000 króna í stofnkostnað. Sá stofnkostnaður þarf ekki að vera í reiðufé heldur má vera í formi bifreiðar, verkfæra, húsnæðis og annars. Eigandi eða eigendur fyrirtækisins eru einungis ábyrgir fyrir þessum fyrstu 125.000 króna og ekki er hægt að gera kröfu á persónulegar eigur þeirra vegna skulda fyrirtækisins.
Aktieselskab, A/S er hlutafélag. Það krefst 500.000 DKK í hlutafé sem má líkt og í Aps vera í formi verkfæra, tölvubúnaðar eða annars. Ekki er hægt að gera kröfu á eigendur vegna skulda fyrirtækisins.

Nýstofnuðum fyrirtækjum býðst ókeypis ráðgjöf í allt að þrjú ár frá stofndegi og er um að gera að nýta sér hana. Þar er um að ræða lögfræðiráðgjöf, skattaráðgjöf og ráðgjöf varðandi rekstur, bókhald og reikningsskil svo tæmi séu tekin. Einnig er boðið upp á ýmis konar námskeið, ýmist þar sem er farið yfir alla þætti við stofnun fyrirtækis frá gerð viðskiptaáætlana og öflun fjárfesta til markaðssetningar, launamála og skattamála.

Hér að neðan eru tenglar yfir á nokkrar gagnlegar síður:
Told & Skat
Kontaktpunktet
100svar.dk
Center for VirksomhedsUdvikling - CVU
ASE - A-kassi fyrir sjálfstætt starfandi
Børsen - viðskiptablað Danmerkur

© 2003-2007 Scope Communications • Allur réttur áskilinn • Um síðuna
Ábendingar og leiðréttingar • Bæta síðunni í Favorites/Bookmarks (ctrl+D)