Upplýsingasíða um Danmörku

Ferðast til DanmerkurFlutt til DanmerkurDanmörk í tölumHagnýtir tenglarSpjallþræðir
Um síðuna

Danmork.is er upplýsingasíða í eigu Scope Communications í Kaupmannahöfn. Þessari síðu er ætlað að veita íslendingum í Danmörku eða á leið til Danmerkur aðgang að samansafni allra helstu upplýsinga á einum stað. Leitast er við að halda magni upplýsinga í lágmarki en vísa á þær síður þar sem er að finna réttastar og nýjastar upplýsingar. Á þann hátt er reynt að tryggja að gestir síðunnar geti ávallt fundið þær upplýsingar sem við eiga á hverjum tíma í stað þess að vera að kaffæra síðunni með upplýsingum sem úreldast strax vegna stöðugra breytinga á reglum og lögum. Engin ábyrgð er tekin á þeim upplýsingum sem hér eru veittar heldur er fólk ávallt hvatt til þess að fá þær staðfestar af viðkomandi yfirvöldum eða aðilum áður en stórar ákvarðanir eru teknar.

Síðan byggir á reynslu höfundar sem sjálfur hefur flutt til Danmerkur, keypt þar húsnæði, sótt nám, leitað að vinnu og stofnað fyrirtæki. Ég hef því kynnst þessum ferlum af eigin raun og veit hversu mikill sparnaður á tíma, peningum og pirringi það er að geta byrjað á réttum stað strax í upphafi. Þess vegna var þessi síða sett saman. Allar ábendingar um efni eða leiðréttingar á því efni sem fyrir er, eru mjög vel þegnar. Ég vona að þessi síða geti orðið þér að gagni í upplýsingaleit þinni.

Virðingarfyllst
Hjörtur Smárason

Ábyrgðarmaður: Hjörtur Smárason
Ábendingar og leiðréttingar: webmaster@theshortcut.to

© 2003-2007 Scope Communications • Allur réttur áskilinn • Um síðuna
Ábendingar og leiðréttingar • Bæta síðunni í Favorites/Bookmarks (ctrl+D)